27.9.2007 | 21:46
Sælar allar!
Nú er sko törnin búin og ég komin í langt frí heila 12 daga
og það á sko margt að gera meðal annars læra, klára verkefnið í sál, reyna að komast eithvað áfram með blogg síðuna og skoða vefsíðugerðina, lesa í LOL og allt
hef ekki enn þá fundið út hvernig á að setja inn myndir, og í þeim skrifuðu orðum fattaði ég þetta og gat sett inn bútamynd frá mér
hrikalega sniðugt og auðvelt þegar maður kann, eins og allt. Ætla að æfa mig í því núna! gangi ykkur allt í haginn, kveðja þar til næst Auður...................................................................




Athugasemdir
þetta er svakalega flott hjá þér, bæði bloggið og bútasaumurinn, kveðja Sjana.
Kristjana Jónsdóttir, 28.9.2007 kl. 02:49
sama segi ég, kvitt,kvitt, muszka
Þórunn Óttarsdóttir, 28.9.2007 kl. 08:40
Fallegt teppi hjá þér Auður:) Mjög flott síða líka....Gangi þér vel að læra þetta allt saman..er einmitt að reyna að koma mér í gírinn fyrir sálfræðiverkefnið:) Besta kveðja
Erna H
Móðir, kona, sporðdreki:), 28.9.2007 kl. 09:12
Heppin þú að eiga svona langt frí. Það er frábær hjá þér bútasaumurinn og flott hjá þér að vera búin að ná þessu með myndirnar með ósk um gott gengi Ragnheiður
Ragnheiður Sigfúsdóttir, 29.9.2007 kl. 17:55
Frábærlega flottur bútasaumur hjá þér... ert þú að búta núna ??? með lærdómnum...??? þetta er allt að gerast með myndirnar... já þetta er sniðugt.....ég hef ekki kíkt á vefsíðugerðina... vonandi ekki flókið....
en það lærist eins og annað....kv. Anna Ruth
Anna Ruth Antonsdóttir, 30.9.2007 kl. 13:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.