13.12.2008 | 07:08
Komin á næturvakt:)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2008 | 03:56
Staðarlotan búin!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.9.2008 | 05:54
Vinna aftur!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.8.2008 | 10:14
Verknámið búið!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.7.2008 | 13:15
Byrjuð í verknámi!!!
Sælt veri fólkið!
Þá er ég búin með fyrstu vikuna í verknáminu, hrikalega gaman deildin kom mér verulega á óvart, ég hafði svo sem engar sérstakar væntingar en það sem af er er mjög skemmtilegt, erfiðast er að keyra á milli frá Selfossi til RVK, það er svo dýrt þessa dagana og þar að auki að vera í 100% vinnu þetta eru 5 ferðir á viku, en það er bara gaman að takast á við það reyna að sjá björtu hliðarnar, ég hef ekki verið í 100% vinnu í 27 ár svo það eru viðbrigði, en maður er líka fljótur að komast inn í vinnuna á deildinni þegar maður er þar alla daga! sem er líka gott, svo þarf maður að trappa sig niður úr acut-fasa í öldrunarhjúkrun sem er allt öðruvísi og ekki síður skemmtilegt. Hlakka til að heyra frá ykkur skólasystur um ykkar reynslu, hafið það gott í sumar, kveðja Auður
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.6.2008 | 12:14
Er ekki kominn tími á smá blogg?
Sæl öll sömul!
Nú er ég að klára sumarfríið mitt og byrja í verknáminu á mánudag í RVK á B-4 í Fossvogi, hlakka mikið til að kynnast þeirri deild, en er voða svekt að vera búin með fríið mitt þetta er samt búin að vera góður tími og ágætt veður, mætti samt vera aðeins heitara. ég er búin að hafa það mjög gott að undanskyldum jarðskjálftanum sem hefði verið ágætt að sleppa við allt of mikil vinna sem fer í að taka til eftir svoleiðis rask! Ég skrapp aðeins til Noregs og fór á Vestfirðina, og inn á Arnavatnsheiði, þannig að ég hef gert heilmikið í mínu fríi, eigilega allt of lítið slappað af en það er líka gaman að ferðast og gera ekki neitt nema dinglast! Og nú tekur alvaran aftur við, það verða komin jól áður en við vitum af og við búnar með námið. Eigið þið nú gott frí sem eruð að fara að byrja og gangi ykkur vel sem eruð að fara í verknám heyrumst síðar.......kveðja Auður
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2008 | 21:36
Jarðskjálftar!!!
Já jörðin er mikið búin að skjálfa hjá okkur þessa dagana, og eiginlega um fátt annað talað, allir að reyna að koma sínu aftur í samt lag þar sem það er hægt og verið að finna úrræði fyrir hina sem misstu allt sitt! Við vorum ótrúlega heppin alla vega enn sem komið er hafa ekki komið fram skemmdir á húsinu okkar, en það er kannski ekki alveg að marka, alla vega síðasr (2000) fór ekki að bera á sigi fyrr en mörgum mánuðum seinna svo nú krossar maður fingur og vonar það besta, skítt veri með glös og bolla og svoleiðis það er alltaf hægt að fara í Ikea og kaupa nýtt, sem ég þarf einmitt að gera á t.d. 12 undirskálar og 1 bolla! dálítið mikið um það, svo er maður búin að læra það að hafa sultukrukkur og salsa sósur í neðstu skúffu og eitthvað létt í efri skápunum svo eitthvað sé nefnt en það er gott að taka vel til og gaman að sjá hvað það er mikið skápapláss hélt að það væri ekki svona mikið! Mest um vert er þó að enginn slasaðist alvalega, það er maður svo ótrúlega þakklátur fyrir. Og nýja sjúkrahúsið stóðst álagið með miklum ágætum, mjög vel byggt hús, komu nokkrar sprungur í eldri bygginguna en ekkert alvalegt sem betur fer og lífið heldur áfram, ég fer alveg að byrja í verknáminu 30.júní ég ætla rétt að vona að ég verði búin að koma húsinu í samt lag áður og fara í smá ferðalag, ein bjartsýn Gangi ykkur vel í ykkar verkefnum! Kveðja Auður
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.4.2008 | 17:12
Tími á blogg........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.3.2008 | 13:16
Gluggaveður!!!
Sæl öll!
Ótrúlega kallt út í þessum norðan strekking, samt sól og voða fallegt að horfa út, brakandi þurkur ekki vantar það, mín bara dugleg í morgun tók af öllum rúmmum setti í vélar og hengdi út verður notalegt að fara í rúmmið í kvöld er svo að hamast að taka sturtu-klefan ótrúlega erfitt verk, allt fullt af kísil og vibba skil ekki hvernig þetta er hannað, en sá í "innlit útlit" eitthvað undra efni sem á að duga á allt er að prófa hvort þetta er satt búin að bera á svo á að bíða síðan að pússa! Gott aðeins að kíkja á bloggið á meðan efnið er að virka. Er ekki alveg í stuði fyrir lærdóm, er þá ekki best að þrífa? alla vega er af nógu að taka jæja best að hætta þessu rausi og henda úr vélinni á snúruna ráðast svo á klefann!!! Gangi ykkur öllum vel í verkefnum dagsins og góða helgikveðja Auður
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.3.2008 | 21:28
Gleðilega páska!!!
Sæl verið þið öll !!
Gleðilega páska.........vona að þið hafið haft það sem best um helgina, ég er reyndar búin að vera að vinna frá því á fimmtudag og þangað til í morgun, og það var bara fínnt ekki neitt brjálæði, allt ferkar á rólegum nótunum, en nú er ég komin í gott frí eldaði fyrir fjölskylduna í kvöld þetta fína páskalamb voða gott, ætla að taka því rólega á morgun, reyna svo aðeins að kíkja á námsefnið á þriðjudag þetta fer óðum að stittast hjá okkur, og ekki veitir af að lesa svo í vikunni er námskeið hjá okkur í Suðurlandsdeild um sykursýki á miðvikud. og föstudag passar alveg að við eru að fara að fara í sykursýkislyfin, gæti ekki hitst betur á. Ég er líka búin að fá að vita hvar ég verð í sumar í verknáminu verð á B-4 á LSH Fossvogi, er búin að fara og hitta deildarstjórann og leist voða vel á allt hlakka mikið til verð þar frá 30 júlí til 23 ágúst, ætlað að vera búin að taka smá sumarfrí áður gangi ykkur öllum vel......kveðja Auður
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)